Heimaklettur.com

 
SLINGER.TK MYNDIR.Heimaklettur.com Leiðbeiningar Setja_myndir_á_netið Hjálp

Heimaklettur.com býður núna öllum þeim sem þekkja Slinger.tk og öðrum eyjamönnum uppá að geyma myndirnar sínar á einum stað.

Ekki þarftu lengur að fá sér svæði einhver staðar þar sem þú getur bara geymt 20 myndir og svo þarftu að sækja um nýtt svæði.


MYNDIR.Heimaklettur.com býður þér núna uppá 250 mb myndasvæði. (Það getur hýst 5000 myndir ef þú nýtir þér þjöppunina sem lýst er hér á síðunni.

Ef það er ekki nóg fyrir þig þá er alltaf möguleiki á að hafa samband við mig og semja um meira. Þetta er frí þjónusta sem ég er bara að bjóða þeim sem þekkja mig og öðrum eyjamönnum, svo að við getum haft allar eyjamyndirnar, bæði fallegar nátturumyndir og svo djammmyndirnar á einum og góðum stað.

Einnig er möguleiki á að læsa sínu albúmi bara fyrir þig sjálfan, einnig er hægt að hafa það læst með lykilorði og þá geta aðeins þeir sem vita lykilorðið skoðað myndirnar. Ásamt fullt af fleiri möguleikum, svo sem að það er hægt að commenta á hverja mynd fyrir sig, gefa hverri mynd einkun og hafa texta með hverri mynd.

En það besta sem er að þú þarft ekki að kunna sama sem neitt til að setja þínar myndir á netið. Ef þú hefur Windows XP í tölvunni þinni, netfang og ágæta nettengingu þá getur þú byrjað að sýna myndirnar þínar eftir 10 mínútur. Allt sem þú þarft að gera er að fylga leiðbeiningunum hérna á síðunni og þú ert kominn með svæði fyrir myndirnar þínar.

Leiðbeiningarnar eru einfaldar.

U.þ.b. 10 mín og hægt er að sjá myndirnar á netinu.
Þú einfaldega nærð í þessa skrá, (Þetta er .reg sem er windows register file og er meinlaus. (Hefur allavega ekki skaða tölvuna mína)) Vistar hana hvar sem er á tölvunni þinni og keyrir hana. Windows spyr hvort þú viljir bæta þessu í registerið og þú smellir á "Ok".

Þegar því er lokið þarftu að fylgja leiðbeiningunum sem þú finnur með því að fara í "Leiðbeiningar" hérna fyrir ofan (á valstikunni). Það eru leiðbeiningar hvernig þú átt að skrá þig sem notenda á MYNDIR.Heimaklettur.com og hvernig þú hleður upp (upload) myndirnar á þitt svæði. Einnig er sýnt hvernig þú þjappar myndunum og velur möppu fyrir þær.

Svo er hægt að fara í "Hjálp" hérna á valstikunni og þar sérðu hvernig þú getur vísað beint á þitt myndaalbúm, læst fyrir þínar myndir, skrifað texta með þeim ásamt fleiri möguleikum.
 




Slinger.tk