17.09.10
![]()
Slinger.tk í pásu
Eins og glöggvir lesendur Slinger.tk hafa tekið eftir þá er Slinger.tk í smá pásu. Ég vill koma því á framfarir að Slinger.tk er ekki hættur og mun rísa aftur, kannski ekki á þessu ári en í náinni framtíð mun koma nýr og endurbættur Slinger.tk þar sem hægt verður að skoða allar 10 þúsund myndirnar, öll video-inn sem Slinger.tk hefur tekið upp og komið að.
Þar sem ég vill ekki loka síðunni og setja vefur í vinnslu (því ég veit ekkert hvenær uppfærslan mun gerast) þá vildi ég allavega skrifa eina létta frétt... svo ég þurfi ekki að skrifa gleðileg jól 2010. Það getur verið mín næsta færsla. Þar sem Slinger.tk notaði Blogger og svo comments frá annari síðu sem eru báðar hættar með þjónustur sínar þá er erfiðara að uppfæra vefinn. Einnig er gott að comment kerfið liggur niðri því þá get ég ekki fengið nein neikvæð ummæli um að ég sé ekki að standa mig.
23.12.09
![]()
Gleðileg Jól
Slinger.tk óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með gríðarlegu þakkláti fyrir síðasta ár sem var eitt það versta í langri Slinger.tk sögu. Árið byrjaði mjög vel og undirbúningur við nýjan Slinger.tk fór á fullt. Vinnslan gekk nokkuð vel framan af en hrapaði svo snögglega vegna annara verkefna.
Með von um að árið 2010 verði aðeins betra, kannski að nýja Slinger.tk síðan komist í loftið og allir þeir 5-6 einstaklingar sem styðja við bakið á okkur haldi áfram að koma á síðuna. Ég vill ekki segja neitt eins og að ég ætli að koma sterkari inn á nýju ári en það er varla hægt að verða slappari, ekki nema að síðan leggist niður.... það mun ekki gerast á næstunni, ekki meðan ég hef tölvu og nettengingu.Facebook killed the bloggers.
Árið 2009 mun 76% allra bloggara íslands hafa lagt niður síðu sína einfaldlega til að geta notað Facebook. Það er einfaldara að skrifa einn status update heldur en heila bloggfrétt og svo er líka um 70-90% íslendinga á Facebook þannig að allir þínir 100-500 vinir sjá statusinn þinn frekar en að segja við alla, farðu á www.blog.blogcentral.is/tetta_er_sidan_minn. Þetta er rétt eins og msn drap ircið, það er miklu einfaldara að nota Facebook til að deila öllum myndunum (þar er líka hægt að tengja einstaklinga inn á myndina) það gerist ekki betra og bloggarar eru einfaldlega að gefast upp. Slinger.tk ætlar nú ekki að henda inn handklæðinu og leggja upp laupana, þótt svo að margar myndir frá Slinger.tk eru núna fáanlegar á facebook (helst að þakka Víðir). Þá mun Slinger.tk koma með nýja síðu og þá verður Slinger.tk minni frétta/blogg síða og mun leggja meiri áherslu á þær 10 þúsund myndir sem eru á Slinger.tk ásamt þeim myndböndum og öðru skemmtilegu sem hægt hefur verið að nálgast á síðunni í gegnum árin.
Ég þakka öllum þeim sem hafa skrifað í comments og fylgst með síðunni í gegnum súrt og sætt.
Öll tölfræði í þessari frétt er búinn til.
5.8.09
![]()
Þjóðhátíð 2009 - Sunnudagurinn MYNDIR
Eftir nokkra erfiða daga eru loksins myndirnar komnar inn frá sunnudeginum. Þær eru 49 talsins og flestar frá brekkusöngnum og tjaldinu. Gríðarlega góð stemning var í dalnum síðasta kvöldið/nóttina. Slinger.tk þakkar EGÞ kærlega fyrir sinn þátt í þjóðhátíðinni ásamt því að þakka öllum þjóðhátíðargestum fyrir frábæra þjóðhátíð... fyrir utan vitleysingana sem reyndu að skemma fyrir öllum með því að vera leiðinlegir.
Slinger.tk þakkar fyrir sig í bili og reynir að koma sterkari inn seinni part ársins eftir frekar dapur ár.
2.8.09
![]()
Þjóðhátíð 2009 - Laugardagurinn MYNDIR
Var að setja inn myndir frá laugardagskvöldinu og eru þær 68 talsins og eins og föstudagskvöldið eru margar skemmtilegar og frábært að sjá að stemningin helst allveg til morguns og greinilega að þjóðhátíðargestir eru mættir til að skemmta sér og hafa gaman af.
Flugeldasýningin var stórkostleg með látum eins og dalurinn einn getur boðið uppá og þrátt fyrir logn (reykurinn var smá fyrir flugeldunum) þá var flugeldasýningin eins sú flottasta í mörg ár. Allir skemmtu sér vel á stóra og litla sviðinu og margir betur en aðrir og er varla hægt að biðja um betra veður. Kom reyndar smá "úði" í nótt en við það þjappaðist hópurinn betur saman og skemmti sér betur fyrir vikið.
![]()
Þjóðhátíð 2009 - Föstudagurinn MYNDIR
Myndirnar frá föstudagskvöldinu eru komnar inná Slinger.tk, þær eru 69 talsins og eru margar hverjar mjög skemmtilegar. Því miður munu ekki koma myndir inn frá húkkaraballinu (þær eru of fáar og ekki nógu góðar, þær kannski koma inn með nýjum Slinger.tk (bónusmyndir :))
Föstudagurinn var frábær og brennan einstaklega falleg og byrjaði með miklum hvelli. Frábær stemning var í dalnum og breytingar á dalnum eru frábærar, stóra sviðið og brekkan miklu betri en undanfarinn ár og fjöldin í brekkunni segir allt sem segja þarf. Leyfi myndunum að tala sínu máli og kveð í bili.
31.7.09
![]()
Þjóðhátíð 2009 hafin
Þá er þjóðhátíð 2009 hafin í vestmannaeyjum, húkkaraballið var haldið í gærkvöldi og heppnaðist það frábærlega. Slinger.tk er mættur aftur á svæðið eins og undanfarin ár en með þeirri breytingu að myndirnar munu ekki koma inn daginn eftir. Það verður aðeins lengri bið í þær ásamt því að myndirnar eru nú aðeins færri en undanfarinn ár.
Slinger.tk óskar öllum eyjamönnum og þjóðhátíðargestum gleðilegrar hátíðar og eigið þið yndislega og ógleymanlega helgi.
23.6.09
![]()
Slinger.tk í sumarfríi
Ef þú hefur vilts hingað fyrir slysni vill ég bara láta þig vita að Slinger.tk er farinn í sumarfrí. Það má búast við að það komi kannski nokkrar myndir inn frá goslokahátíðinni sem er eftir 2 vikur og svo verða þjóðhátíðarmyndirnar á sínum stað.
Ástæðan fyrir því að Slinger.tk ákvað að taka sér sumarfrí er sú að þetta er í fyrsta skiptið sem eigandin sjálfur fær sumarfrí og því ákvað hann að taka það með trompi og setja síðuna í sumarfrí.
En hann er ekki að liggja á maganum að leika sér en í frítímanum er unnið að nýjum og mjög mikið endurbættum Slinger.tk sem vonandi verður tilbúinn fyrir árslok.
3.5.09
![]()
Diskóhátíð - MYNDIR
Þá er loksins komin inn frétt og líka myndir hérna á Slinger.tk. Eins og sagt var síðast þá er Slinger.tk í góðri hvíld meðan önnur verkefni eru í gangi. Ný Slinger.tk síða er í vinnslu en verður ekki tilbúin á næstunni enda að nota það verkefni til að læra meira og gera frábæra síðu sem heldur á góðan hátt utanum allar myndirnar hérna.
Diskóhátíð er í eyjum þessa helgina og eftir að KFS spilaði við ÍBV æfingaleik á föstudaginn þá var haldið eitt gott KFS partý og þaðan farið uppí höll þar sem Páll Óskar hélt uppi stuðinu fram undir morgun. Setti inn 45 myndir frá partýinu og ballinu og eru margar af þeim skrautlegar enda liðið í góðu skapi og allir búnir að klæða sig eins á alvöru diskóballi. Mæli með að skoða myndirnar og kíkja svo aftur hingað á Slinger.tk eftir svona 2-3 mánuði þegar næsta frétt kemur inn.
4.4.09
![]()
Frábært afrek
Slinger.tk vann það frábæra afrek að vera leiðinlegasta síðan í heimi. Þetta kemur ekki á óvart sagði fréttaritari Slinger.tk í samtali við blaðamann í dag þar sem við höfum reynt við þennan titill í marga mánuði núna og loksins tókst það. Hann vildi skila kveðju og þökkum til allra þeirra sem gerðu þennan áfanga að veruleika.
Einnig bendum við á að páskarnir eru að ganga í garð Slinger.tk ætlar að birta nokkrar myndir af djamminu hérna í eyjum yfir páskana. Einnig er Slinger.tk, í samvinnu við nokkrar frábæra einstaklinga, að stefna á FIFA 09 mót í Playstation yfir páskana í eyjum. Þar sem úrslitakeppnin/leikurinn verður spilaður í bíó í eyjum....
Einnig hvíslaði lítil fugl að vinnan við nýjan Slinger.tk sé hafin, en vegna þess að Slinger.tk stefnir á að vinna ekki það afrek aftur að vera leiðinlegasta síðan í heimi mun mikil og löng vinna vera lögð í það að gera nýjan Slinger.tk að frábærum og einstaklega þægilegum vef.
16.2.09
Frétt á mánaðarbili
Ákvað í anda föstudagsins 13, síðastliðinn að setja inn eina frétt hérna eftir helgi og varð nú að standa við það. Eins og alltaf hef ég ekkert að segja, alltaf vinnandi og brasandi.
Eina í fréttum er það að ég og Ívar Róberts höfum opnað Sumarvinna.is. Vefur þar sem hægt að finna rétta sumarstarfið. Það er allt í vinnslu að setja vefinn á fullt og því er lítið að sjá á honum núna en verður vonandi allt komið á fullt á næstu dögum.
Auðvitað mun svo líða mánuður áður en næsta frétt kemur hingað inn og þið getið bara beðið allveg róleg.
23.1.09
![]()
Vandræði á Slinger.tk
Auðvitað var það Spam-inu að kenna. En það er ekki bara hægt að kenna því um allt saman, ég setti ekki spam vörn á gestabók á eina síðu hjá mér og auðvitað komu 97 þúsund færslur inná hana. Þar af leiðandi tók hýsingaraðillinn minn til sinna ráða og lokaði öllu hjá mér. Heimaklettur.com og allt þar undir og eiginlega allar síður sem ég hýsi var auðvitað lokað og hafði engin aðgengi að þeim.
En eftir nokkra pósta til hýsingaraðila og lagfærslu á villunni minni þá náðist samkomulag um að opna allt aftur og vonandi þarf ég ekki að hafa fleiri vandræði af því. Vonandi tókið þið ekki eftir þessu, enda mjög fáir sem koma hingað á hverjum degi og Slinger.tk var aðeins lokaður í 2 daga.
13.1.09
![]()
Þrettándaballið - MYNDIR
Þá eru komnar inn 31 mynd frá þrettandaballinu sem haldið var í höllinn síðast liðinn föstudag. Þrettándin er alltaf skemmtilegur hérna í eyjum og var engin breyting þar á. Fullt af fólki mætt, og alltaf skemmtilegt. Ég hef reyndar mjög lítið að segja en vildi bara setja myndirnar inn fyrir fólk til að skoða.
1.1.09
![]()
Áramótaball - MYNDIR
Þá er árið 2008 búið, rosalega fljótt að líða og tók það aðeins 12 mánuði. Auðvitað þurfti að fagna því að nýtt ár er gengið í garð eins og vanin er. Dans á Rósum héldu áramótaball í Höllinni þar sem mætingin var mjög góð. Allir mjög seinir í því eins og vanalega en stemningin ólýsanleg eins og alvöru áramótaböll eiga að vera. Slinger.tk birtir 41 myndir frá þessari skemmtun þar sem allir voru í góðu skapi og ekkert nema hamingja.
25.12.08
![]()
Gleðileg Jól
Slinger.tk óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með gríðarlegu þakkláti fyrir síðasta ár sem var eitt það besta í nokkurn tíma. Vonandi verður árið 2009 enn betra.
Þakka öllum fyrir hlýjar kveðjur á árinu og þakkar Kristinn Freyr og Svana einnig fyrir sig. Takk fyrir og eigið frábær áramót og frábært ár.
17.12.08
![]()
VolcanoCafe - MYNDIR
Laugardaginn 6.des opnaði VolcanoCafé í miðbæ vestmannaeyja og er staðurinn stórglæsilegur eins og hægt er að skoða á heimasíðu hans, volcanocafe.is. Þrátt fyrir að Slingerinn sé nú ekki mikið úti á lífinu sá hann sig næstum því tilneyddan til að mæta og skoða staðinn og fólkið. Auðvitað var smellt af nokkrum myndum svona til að halda uppi heiðri Slinger.tk og er hægt að skoða myndirnar með því að smella á litlu myndina sem fylgir þessari frétt.
Ég er staddur á Siglufirði þessa stundina og verð hér til 27 des en þá kem ég til eyja og þá verða ekkert nema skemmtanir. 3 böll í höllinni, 27 des, áramótaball og auðvitað þrettándaballið sem haldið verður 9 jan. Ekki er vitað hvort maður getur, nennir og tímir á öll þessi böll en það verður að koma í ljós seinna. Kveðja frá Sigló.
4.12.08
![]()
Desember mættur aftur
Jólastússið að fara á fullt og alltaf jafn lítið að gera á Slinger.tk. Það verður örugglega ennþá minna að gera fram að Jólum en auðvitað munu koma myndir inn frá áramótunum, eins og venjan er.
Ástæðan að það verður mjög lítið að gera hérna, annað en að ég á barn, hef lítin tíma og tek fáar myndir núna er sú að ég ætla mér að eyða jólunum á norðurpólnum, sem er annað norð yfir Siglufjörð. Ég og fjölskyldan höldum norður á leið í næstu viku og verðum fram yfir jólinn og svo komum við til eyja milli jóla og nýárs og skemmtum okkur í eyjum eins og eyjamenn eru frægir fyrir... maður þarf bara að redda sér barnapíu (það er eitthvað nýtt).
Annars er nóg að gera í vinnu hjá mér, við að opna fullt af síðum, þar á meðal Area51 sem er skemmtilegur afþreyingavefur. Annars setti ég Slinger.tk í smá jólaskap enda er ég byrjaður að spila jólalag og allt að gerast, enda mun ég eiga hvít jól, það er næstum því öruggt.
14.11.08
![]()
Kristinn Freyr
Ég er svo stoltur og í skýjunum að ég hef ekki haft tíma að uppfæra Slinger.tk því ég er að setja inn fullt af myndum af barninum á barnaslingerinn. Af mér er ekkert að frétta... fórum til rvk að skíra þegar verslunarballið var þannig að ekki var ég á því til að taka myndir. Strákurinn minn fékk nafnið Kristinn Freyr.
Svo er bara fæðingarorlofið mitt að ljúka núna eftir helgina, heill mánuður eftir og aðeins einn og hálfur til jóla. Ég get ekki lofað miklu hérna á síðuna en maður reynir alltaf. Kveðja og takk fyrir innlitin.
19.10.08
![]()
Strákur Sæþórsson
Þá er barnið komið, þann 18 október kl. 1:55 eignaðist Sæþór Jóhannesson og Svanhildur H. Freysteinsdóttir, yndislegan strák á Heilsugæslustöðinni í Vestmannaeyjum. Auðvitað er pabbinn, Sæþór, Slinger sjálfur búinn að búa til heimasíðu fyrir litla karlinn og er hægt að skoða hana á barnaslinger.tk.
Allt gett þetta vel og er hægt að skoða myndir og lesa allar nánari upplýsingar á síðunni hans. Það þarf lykilorð til að skoða myndirnar, annahvort lykilorð móður eða pabba, hægt er að senda mér sms eða einn stk tölvupóst til að fá lykilorðið sent.
12.10.08
![]()
Október þann 16
Ég veit nú ekki hvort allir vita það en barnið mitt er væntanlegt í heiminn þann 16. október sem svo ótrúlega vill til að sé næsta fimmtudag. Ég er búinn að vera að einbeita mér að því að koma mér og konunni í gott húsnæði og ganga frá öllum hlutum svo þetta gangi allt saman vel.
Einnig var verið að skíra strákinn hjá Smára og Sigrúnu og heitir litli strákurinn, Ívar Atli. Mjög fallegt nafn og gaman að vera skírnarvotturinn hans. Mjög lítið hef ég merkilegt að segja og því verðru að líða lengri tíma milli uppfærsla á Slinger.tk
1.10.08
![]()
Afmæli míns og Gústafs og Lundaball - MYNDIR
Þá eru komnar inn myndirnar frá laugardagskvöldinu sem var eftirminnanlegt. Sendum við Gústaf út eitthvað um 80 boðskort og biðjumst við afsökunar ef þitt boðskort týndist í póstinum en svona er pósturinn bara. Undirbúningurinn var mjög seinn hjá okkur og var farið á fullt á fimmtudeginum en þetta bjargaðist allt saman og heppnaðist fullkomlega.
Húsið opnaði um sex leytið og var fólkið að láta sjá sig um 19 leytið eins og vanalegt er. Gústaf kveikti í grillinum og við fengum Andra Hugo til að grilla ofaní mannskapinn og hjálpaði Hannsi honum mikið og fengu og fá þeir mikið hrós fyrir sitt starf. Þegar allir voru búnir að fá sér nóg að borða og búið að horfa á myndasýninguna af okkur Gústaf þegar við vorum litlir þá var setið og spjallað. Fengið sér eitthverjar hressingar, bollan var bannvænn með hættulegum ávöxtum sem nokkrir fengu að kenna á. Farið var í leik sem kallast Lilli Litli og heppnaðist hann frábærlega þar sem Anton Bjarna fór á kostum sem Lilli Litil. Svo tókum við líka Actionary þar sem kom vel í ljós hverjir voru búnir að fá sér ávexti og hverjir voru rólegir. Mikil hiti var í mannskapnum enda miklar keppnismanneskjur þarna og skemmtu flest allir sér vel og er hægt að sjá mynd af sigurliðinum í myndunum. Eftir það var gítarstemning og partý eins og engin væri morgundagurinn og áður en við vissum af var klukkan orðinn svo margt að rútan var kominn til að skutla öllum uppí höll á lundaballið.
Lundaballið var mjög vel heppnað að því sem ég heyrði og var höllinn troðfull þegar ég mætti og ballið var frábært þótt nokkrir hefðu kvartað yfir að tónlistin var ekki stillt á hæsta og eitthver smáatriði en maður lét það ekki á sig fá. Einhverjar myndir voru teknar á ballinum eða eitthvað um 27 myndir. Endilega kíkið á myndirnar og aftur vill ég þakka öllum fyrir komuna og ég veit að ég og Gústaf þökkum kærlega fyrir okkur, bæði fyrir mætinguna og gjafirnar. Takk fyrir og sjáumst fljótlega.... enda er barnið mitt að fara að fæðast..............
30.9.08
![]()
Helginni lokið
Þá er helginni lokið þá þessi helgi var alls ekki slæm verður nú bara að viðurkennast. Því miður hef ég ekki komist í að setja myndirnar á netið og fékk ég svo mikið samviskubit að ég ákvað að skrifa nokkur orð hérna og samfæra ykkur að myndirnar munu koma inn á næsta sólarhring, annars verð ég rekinn frá Slinger.tk. Yfirmennirnir á þessari síðu eru miklu harðari en í vinnunni minni.
Ég er að hugsa um að skrifa meira um afmælið okkar Gústafs og lundaballið í höllinni í færslunni með myndunum. En ég og Gústaf viljum þakka öllum þeim sem heiðruðu okkur með nærveru sinni og vonandi skemmtu sér allir vel.







